Gagnageymslan forsniðin
1 Veldu
Valmynd
>
Forrit
>
Skrifstofa
>
Skráastjórn
.
2 Veldu gagnageymsluna.
3 Veldu
Valkostir
>
Forsníða gagnageymslu
. Ekki skal
forsníða gagnageymsluna með tölvuhugbúnaði, það
getur dregið úr afköstum hennar.
Þegar gagnageymslan er endurforsniðin er öllum gögnum
eytt úr henni varanlega. Taka skal öryggisafrit af gögnum sem
á að geyma áður en gagnageymslan er forsniðin. Nota má
Nokia Ovi Suite til að taka öryggisafrit af gögnum á samhæfri
tölvu. Stafræn réttindi (DRM) geta komið í veg fyrir að sum
afrituð gögn verði sett upp aftur. Þjónustuveitan gefur nánari
upplýsingar um þau stafrænu réttindi sem gilda um efnið.
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
101
Ekki er tryggt að öllum trúnaðarupplýsingum sem vistaðar
eru í gagnageymslu tækisins sé varanlega eytt þó að hún sé
forsniðin. Við venjulegt forsnið er forsniðið rými aðeins merkt
sem tiltækt pláss og vistfangi til að finna skrárnar á ný er eytt.
Það kann að vera hægt að endurheimta forsniðin eða jafnvel
yfirskrifuð gögn með til þess gerðum tækjum og hugbúnaði.