Aukin ending rafhlöðu
Ýmsar aðgerðir tækisins ganga á rafhlöðu símans og draga
úr endingu hennar. Til að spara rafhlöðuna skaltu hafa
eftirfarandi í huga:
•
Aðgerðir sem nota Bluetooth, eða keyrsla slíkra aðgerða
í bakgrunni meðan aðrar aðgerðir eru notaðar, krefjast
aukinnar rafhlöðuorku. Slökkva skal á Bluetooth-
tækninni þegar ekki er þörf fyrir hana.
•
Aðgerðir sem nota þráðlaust staðarnet, eða keyrsla slíkra
aðgerða í bakgrunni meðan aðrar aðgerðir eru notaðar,
krefjast aukinnar rafhlöðuorku. Slökkt er á þráðlausu
staðarneti þegar þú ert ekki að reyna að tengjast eða ert
ekki með tengingu við aðgangsstað eða að leita að
tiltæku netkerfi. Til að spara rafhlöðuna enn frekar er
hægt að stilla tækið þannig að það leiti ekki eða leiti
sjaldnar að tiltækum netkerfum í bakgrunninum.
•
Ef þú hefur stillt
Pakkagagnatenging
á
Ef samband
næst
í tengistillingum og ekkert pakkagagnasamband
(GPRS) er til staðar reynir tækið reglulega að koma á
pakkagagnatengingu. Til að lengja endingartíma
rafhlöðunnar velurðu
Pakkagagnatenging
>
Ef með
þarf
.
•
Kortaforritið hleður niður nýjum kortaupplýsingum
þegar þú flettir á ný svæði á kortinu en það eykur á
orkuþörfina. Hægt er að koma í veg fyrir sjálfvirkt
niðurhal á nýjum kortum.
•
Ef sendistyrkur farsímakerfisins er breytilegur á þínu
svæði verður tækið reglulega að leita að tiltækum
símkerfum. Þetta eykur orkuþörfina.
Ef símkerfið er stillt á tvöfalda stillingu í
símkerfisstillingum leitar tækið að 3G-símkerfinu. Hægt
er að stilla tækið til að nota eingöngu GSM-símkerfið. Til
að nota aðeins GSM-símkerfið velurðu
Valmynd
>
Stillingar
og
Tengingar
>
Símkerfi
>
Símkerfi
>
GSM
.
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
120
•
Baklýsing skjásins eykur orkuþörfina. Í skjástillingunum
getur þú stillt birtustig og breytt tímanum sem þú vilt að
líði þar til slökkt er á baklýsingunni. Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Sími
>
Skjár
>
Tímamörk ljósa
. Til að
stilla ljósnemann sem fylgist með birtuskilyrðum og stillir
skjábirtuna velurðu
Birtuskynjari
. í skjástillingum.
•
Keyrsla forrita í bakgrunni krefst aukinnar rafhlöðuorku.
Til að loka forritum sem eru ekki í notkun eða svara ekki,
velurðu
Valkostir
>
Sýna opin forrit
og flettir að
forritinu með valmyndartakkanum. Haltu
valmyndartakkanum inni til að opna forritið og veldu
Valkostir
>
Hætta
.