Um hugbúnað tækja og uppfærslur forrita
Hugbúnaðaruppfærslur tækja og uppfærslur forrita veita
nýja möguleika og bættar aðgerðir fyrir tækið þitt. Uppfærsla
á hugbúnaði getur einnig bætt afköst tækisins.
Mælt er með að þú takir öryggisafrit af persónulegum
upplýsingum áður en þú uppfærir hugbúnað tækisins.
Viðvörun:
Ekki er hægt að nota tækið, jafnvel ekki til að hringja
neyðarsímtöl, fyrr en uppfærslunni er lokið og tækið hefur
verið endurræst.
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
118
Það að hlaða hugbúnaðaruppfærslum getur falið í sér stórar
gagnasendingar (sérþjónusta).
Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu eða
tengdu hleðslutækið áður en uppfærslan er ræst.
Eftir að þú uppfærir hugbúnað tækisins eða forrit kunna
leiðbeiningarnar í notendahandbókinni að vera úreltar.