
Hreyfimyndir
Hægt er að hlaða niður og straumspila myndskeið frá
samhæfum myndefnisþjónustum á netinu (sérþjónusta) með
því að nota pakkagagnatengingu eða þráðlausa
staðarnetstengingu. Einnig er hægt að flytja myndskeið úr
samhæfri tölvu í tækið og skoða þau þar.
Niðurhal á hreyfimyndum getur falið í sér stórar
gagnasendingar um farsímakerfi þjónustuveitunnar.
Upplýsingar um gagnaflutningsgjöld fást hjá
þjónustuveitum.
Tækinu getur fylgt fyrirfram valin þjónusta.
Þjónustuveitur bjóða ýmist upp á ókeypis efni eða taka gjald
fyrir. Kannaðu verðið hjá þjónustunni eða þjónustuveitunni.