Myndsímtali komið á
Í myndsímtali (sérþjónusta) geta bæði þú og viðmælandi
þinn séð rauntíma hreyfimynd af hvor öðrum. Hreyfimyndin
sem myndavélin tekur birtist hjá viðmælandanum.
Til að geta hringt myndsímtal þarftu USIM-kort og að vera
innan þjónustusvæðis 3G-símkerfis. Netþjónustuveitan þín
gefur upplýsingar um framboð, verð og áskrift að
myndsímtölum.
Aðeins er hægt að koma á myndsímtali við einn aðila í einu.
Hægt er að koma á myndsímtali við samhæfan farsíma eða
ISDN-tengd tæki. Ekki er hægt að koma á myndsímtölum
þegar annað símtal, myndsímtal eða gagnasímtal er virkt.
Vísar
Tækinu berst ekki hreyfimynd (annaðhvort sendir
viðtakandinn ekki hreyfimyndina eða símkerfið
sendir hana ekki).
Þú hefur hafnað hreyfimyndasendingu úr tækinu
þínu. Til að senda kyrrmynd í staðinn velurðu
Valmynd
>
Stillingar
og
Hringistillingar
>
Símtöl
>
Mynd í myndsímtali
.
Jafnvel þótt þú hafnir hreyfimyndasendingu í
myndsímtali verður tekið gjald fyrir símtalið sem
myndsímtal. Hafðu samband við þjónustuveituna til
að fá upplýsingar um kostnað.
1 Á heimaskjánum velurðu til að opna númeravalið og
slærð inn símanúmerið.
2 Veldu
Valkostir
>
Hringja
>
Myndsímtal
.
Fremri myndavélin er sjálfgefið valin í myndsímtali. Það
getur tekið smástund að koma á myndsímtali. Ef ekki
tekst að koma á tengingu (t.d. ef símkerfið styður ekki
myndsímtöl eða móttökutækið er ekki samhæft) er spurt
hvort þú viljir hringja venjulegt símtal eða senda
textaskilaboð í staðinn.
Myndsímtal er í gangi þegar þú getur séð tvær
hreyfimyndir og heyrt hljóð úr hátalaranum.
Viðmælandinn getur hafnað myndsendingu (sýnd með
) og þá heyrir þú aðeins rödd hans og sérð að auki
kyrrmynd eða gráan bakgrunn.
Myndsímtali slitið
Ýttu á hætta-takkann.