Símhringingu svarað eða hafnað
Ýttu á hringitakkann til að svara símhringingu eða strjúktu
Strjúka til að svara
frá vinstri til hægri. Aðeins er strokið ef
snertiskjárinn er læstur.
Hægt er að opna snertiskjáinn, án þess að svara símtali, með
því að strjúka
Strjúka til að opna
frá hægri til vinstri, og
svara síðan eða hafna símtalinu eða senda höfnunarskilaboð.
Slökkt er sjálfvirkt á hringitóninum.
Viljir þú ekki svara símtali skaltu ýta á hætta-takkann til að
hafna því. Ef símtalsflutningur (sérþjónusta) er virkur, þá er
símtalið flutt um leið og því er hafnað.
Til að slökkva á innhringingartóni velurðu
Hljóð af
.
Hægt er að senda höfnunarskilaboð, sem sýna að símtalinu
er í raun ekki hafnað, og láta þann sem hringir vita að þú getir
ekki svarað með því að velja
Hljóð af
>
Senda sk.b.
, breyta
skilatextanum og ýta á hringitakkann.
Til að ræsa aðgerðina velurðu
Valmynd
>
Stillingar
og
Hringistillingar
>
Símtöl
>
Hafna símtali með skilab.
Til
að skrifa venjuleg skilaboð velurðu
Texti skilaboða
.