Stillingar samnýtingar
Til að koma á samnýtingu hreyfimynda þarf P2P- og 3G-
tengistillingar.
Tenging á milli einstaklinga (P2P) er einnig þekkt undir
heitinu SIP-tenging (Session Initiation Protocol). SIP-
sniðstillingar verða að vera settar upp í tækinu til að hægt sé
að nota samnýtingu hreyfimynda. SIP-stillingarnar fást hjá
þjónustuveitunni. Nauðsynlegt er að vista þær í tækinu.
Þjónustuveitan gæti sent þér stillingarnar eða gefið þér upp
nauðsynlegar stillingar.
Bæta SIP-vistfangi við tengilið
1 Veldu
Valmynd
>
Tengiliðir
.
2 Veldu tengiliðinn eða búðu til nýjan tengilið.
3 Veldu
Valkostir
>
Breyta
.
4 Veldu
Valkostir
>
Bæta við upplýsingum
>
Samnýta
hreyfimynd
.
5 Sláðu inn SIP-vistfangið á forminu
notandanafn@vistfang (hægt er að nota IP-tölu í stað
vistfangs).
Ef þú veist ekki SIP-vistfang viðkomandi geturðu notað
símanúmer hans, ásamt landsnúmerinu, til að samnýta
hreyfimynd (ef netþjónustuveitan styður það).
Setja upp 3G tenginguna þína
Hafðu samband við þjónustuveituna þína til að fá samning
um notkun 3G-símkerfis.
Gakktu úr skugga um að 3G-aðgangsstaðastillingar tækisins
séu réttar. Nánari upplýsingar um stillingarnar fást hjá
þjónustuveitunni.
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
35