Um Myndir
Með Myndum er hægt að skoða myndir og myndskeið sem
hafa verið tekin, hlaðið niður af vefnum, móttekin í
margmiðlunarskilaboðum eða tölvupósti, vistuð á
minniskorti eða afrituð í minni tækisins af minniskorti eða
annars staðar frá.
Veldu
Valmynd
>
Myndir
og svo úr eftirfarandi:
Tekið myndefni — Til að sjá öll myndskeiðin og myndirnar
sem þú hefur tekið.
Mánuðir — Til að sjá myndir og myndskeið flokkuð eftir
mánuðum. Gildir aðeins um myndir sem eru teknar með
tækinu.
Albúm — Til að skoða sjálfgefin albúm og þau sem þú hefur
búið til.
Merki — Til að skoða merkin sem hafa verið búin til fyrir
hverja mynd.
Allt — Til að sjá allar myndirnar og myndskeiðin í tækinu.
Samnýt. á neti — Til að senda myndir eða myndskeið á
vefinn.