Góð ráð við að koma á GPS-tengingu
Athugaðu stöðu merkja frá gervitungli
Veldu
Valmynd
>
Forrit
>
Staðsetning
og
GPS-gögn
>
Valkostir
>
Staða gervitungla
.
Ef tækið hefur fundið gervitungl birtist stika fyrir hvert þeirra
á upplýsingaskjánum fyrir gervitungl. Því lengri sem stikan
er, þeim mun sterkara er gervihnattamerkið. Stikan skiptir
litum þegar tækið hefur fengið nægar upplýsingar frá
gervihnattamerkinu til að geta reiknað út staðsetningu þína.
Tækið verður í upphafi að fá merki frá a.m.k. fjórum
gervitunglum til að geta reiknað út staðsetningu þína. Þegar
frumútreikningur hefur farið fram kann það að vera
mögulegt að reikna út staðsetningu þína með þremur
gervitunglum. Hins vegar er útreikningurinn nákvæmari
þegar fleiri gervitungl finnast.
Ef ekkert merki frá gervitungli finnst skal athuga eftirfarandi:
•
Sértu innanhúss skaltu fara út til að ná betra merki.
•
Sértu úti skaltu fara á opnara svæði.
•
Slæm veðurskilyrði geta haft áhrif á merkisstyrkinn.
•
Sum farartæki eru með skyggðum rúðum og ekki er víst
að gervihnattamerki berist í gegnum þær.
•
Gakktu úr skugga um að þú sért ekki að byrgja loftnetið
með hendinni.
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
64
Það getur tekið allt frá fáeinum sekúndum upp í nokkrar
mínútur að koma á GPS-tengingu. Það getur tekið lengri tíma
að koma á GPS-tengingu í bíl.
GPS-móttakarinn notar orku rafhlöðunnar. Notkun hans
getur tæmt rafhlöðuna fyrr en ella.