Sími og SIM
Hægt er að velja öryggisstillingar fyrir tækið og SIM-kortið.
Til dæmis er hægt að breyta aðgangsnúmerum.
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Sími
>
Símastjórnun
>
Öryggisstillingar
>
Sími og SIM-kort
.
Veldu úr eftirfarandi:
Beiðni um PIN-númer — Þegar kveikt er á þessari stillingu
er beðið um númerið í hvert skipti sem kveikt er á tækinu.
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
108
Sum SIM-kort leyfa ekki að hægt sé að gera beiðni um PIN-
númer óvirka.
PIN-númer, PIN2-númer og Læsingarkóði — Breyttu PIN-
númeri, PIN2-númeri og læsingarnúmeri. Þessi númer geta
aðeins innihaldið tölur frá 0 til 9. Forðast skal að nota
aðgangsnúmer sem líkist neyðarnúmerum, t.d. 112, til að
komast hjá því að hringja óvart í neyðarnúmer. Hafðu
samband við þjónustuveituna ef þú glatar PIN- eða PIN2-
númerinu þínu. Ef þú gleymir læsingarkóðanum skaltu hafa
samband við Nokia Care þjónustuver eða þjónustuveituna
þína.
Sjálfv. læsingartími síma — Til að koma í veg fyrir
óleyfilega notkun skal láta tækið læsa sér sjálfvirkt eftir
tiltekinn tíma. Læst tæki er ekki hægt að nota fyrr en réttur
læsingakóði hefur verið sleginn inn. Veldu
Enginn
til að gera
þennan valkost óvirkan.
Læsa ef skipt um SIM-kort — Stilltu tækið þannig að beðið
sé um læsingarkóða þegar óþekkt SIM-kort er sett í það.
Tækið heldur þá saman lista yfir þau SIM-kort sem það
viðurkennir sem kort eigandans.
Ytri símalæsing — Til að gera ytri læsingu virka eða óvirka.
Lokaður notendahópur — Tilgreindu hóp fólks sem þú
getur hringt í og sem getur hringt í þig (sérþjónusta).
Staðfesta SIM-þjónustu — Láttu tækið biðja um
staðfestingu þegar þú notar SIM-kortsþjónustu
(sérþjónusta).