Stillingar fyrir aukabúnað
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Sími
>
Aukabúnaður
.
Sum tengi fyrir aukabúnað sýna hvaða tegund búnaðar er
tengd við tækið.
Veldu aukabúnað og svo úr eftirfarandi:
Sjálfvalið snið — Veldu sniðið sem nota skal í hvert skipti
sem tiltekinn samhæfur aukahlutur er tengdur við tækið.
Sjálfvirkt svar — Stilltu tækið svo það svari innhringingu
sjálfkrafa eftir fimm sekúndur. Ef hringitónninn er stilltur á
Pípa einu sinni
eða
Án hljóðs
er slökkt á sjálfvirkri svörun.
Ljós — Stilltu ljósin svo þau lýsi áfram að biðtíma loknum.
Það fer eftir aukabúnaðinum hvaða stillingar er hægt að
velja.
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
107
Til að breyta stillingum fyrir sjónvarpsúttak velurðu
Sjónvarp
út
og svo úr eftirfarandi:
Sjálfvalið snið — Veldu snið sem er notað í hvert skipti sem
Nokia Video-tengisnúra er tengd við tækið.
Myndhlutföll sjónvarps — Veldu skjáhlutfall sjónvarpsins.
Sjónvarpskerfi — Veldu hliðræna (analog)
myndmerkiskerfið sem er samhæft sjónvarpinu.
Flöktsía — Til að bæta myndgæðin á sjónvarpsskjánum
velurðu
Kveikja
. Ekki er víst að flöktsían dragi úr flökti á
öllum sjónvarpsskjám.