Verndað efni
Varið efni með stafrænni réttindatækni (DRM), t.d. sumar
efnisskrár eins og myndir, tónlist eða myndskeið, fylgir
tengdum leyfum sem skilgreina notkunarrétt þinn á efninu.
Þú getur skoðað upplýsingarnar og stöðu leyfisins ásamt því
að endurvirkja og fjarlægja leyfið.
Vinna með stafræn notkunarleyfi
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
>
Sími
>
Símastjórnun
>
Öryggisstillingar
>
Varið innihald
.
Stafræn réttindatækni (DRM)
Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir stafrænnar
réttindatækni (DRM) til að vernda hugverkarétt sinn, þ.m.t.
höfundarrétt. Þetta tæki notar mismunandi gerðir
stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið efni. Með þessu
tæki er hægt að fá aðgang að efni sem verndað er með
WMDRM 10, OMA DRM 1.0 og OMA DRM 2.0. Ef tiltekinn
stafrænn hugbúnaður nær ekki að verja efni kunna
efniseigendur að biðja um að geta slíks hugbúnaðar til að
opna nýtt efni sem er varið með stafrænum réttindum sé
endurvakin. Slíkt kann einnig að hindra endurnýjun þess
stafræns varins efnis sem er þegar í tækinu. Afturköllun slíks
hugbúnaðar hefur ekki áhrif á notkun efnis sem er verndað
með öðrum gerðum stafrænna réttinda eða notkun efnis sem
ekki er verndað með stafrænum réttindum.
Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir leyfi
sem tilgreinir hvernig hægt er að nota efnið.
Ef tækið er með OMA DRM varið efni skal nota
öryggisafritunaraðgerðina í Nokia Ovi Suite til að taka
öryggisafrit af bæði opnunarlyklunum og efninu.
Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni ásamt
leyfi þess ef minni tækisins er forsniðið. Einnig gæti leyfið og
efnið glatast ef skrár í tækinu skemmast. Glatist leyfið eða
efnið getur það takmarkað möguleikann á að nota efnið
aftur. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Sum leyfi kunna að vera tengd tilteknu SIM-korti og aðeins er
hægt að fá aðgang að varða efninu ef SIM-kortið er í tækinu.