Símtalsstillingar
Með símtalsstillingum geturðu valið tilgreindar stillingar í
tækinu þínu.
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Hringistillingar
>
Símtöl
.
Veldu úr eftirfarandi:
Senda mitt númer — Veldu
Já
til að þeir sem þú hringir í
sjái símanúmerið þitt. Ef þú vilt nota stillingarnar sem
þjónustuveitan þín hefur samþykkt skaltu velja
Stillt af
símkerfi
(sérþjónusta).
Birta símanúmerið mitt — Veldu
Já
til að þeir sem þú
hringir í sjái netauðkennið þitt.
Símtal í bið — Láttu tækið gera þér viðvart ef hringt er í þig
á meðan þú ert að tala í símann (sérþjónusta) eða athugaðu
hvort sú aðgerð er virk.
Netsímtal í bið — Stilltu símann þannig að þú fáir
tilkynningu um netsímtöl sem berast þegar þú ert að tala í
símann.
Netsímtalstónn — Veldu
Kveikt
til að láta tækið gera
viðvart ef hringt er í þig á netinu. Ef þú velur
Slökkt
færðu
aðeins tilkynningu um ósvöruð símtöl.
Hafna símtali með skilab. — Sendu textaskilaboð þegar þú
hafnar símtali og greindu þeim sem hringdi frá því hvers
vegna þú gast ekki svarað.
Texti skilaboða — Skrifaðu stöðluð textaskilaboð sem eru
send þegar þú hafnar símtali.
Eigin mynd í mót. símtali — Heimila eða hafna
myndsendingu á meðan myndsímtali stendur.
Mynd í myndsímtali — Ef myndskeið er ekki sent í
myndsímtali er hægt að velja kyrrmynd sem birtist þess í stað.
Sjálfvirkt endurval — Láttu tækið gera allt að tíu tilraunir
til að hringja aftur í númer sem ekki náðist samband við. Ýttu
á hætta-takkann til að slökkva á sjálfvirka endurvalinu.
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
113
Sýna lengd símtala — Birta lengd símtals meðan á því
stendur.
Samantekt símtals — Birta lengd símtals eftir að því lýkur.
Hraðval — Kveikt á hraðvali.
Takkasvar — Kveikt á takkasvari.
Lína í notkun — Þessi stilling (sérþjónusta) sést aðeins ef
SIM-kortið styður tvær símalínur, þ.e. tvö númer í áskrift.
Veldu hvaða símalínu á að nota til að hringja og senda
textaskilaboð. Það er hægt að svara símtölum á báðum
línum, burtséð frá því hvor línan hefur verið valin. Ef þú velur
Lína 2
en hefur ekki gerst áskrifandi að þessari sérþjónustu
geturðu ekki hringt úr tækinu. Þegar lína 2 er valin birtist
táknið þegar tækið er í biðstöðu.
Línuskipting — Til að hindra að skipt sé á milli lína
(sérþjónusta), ef SIM-kortið styður það. Til að breyta þessari
stillingu þarftu að hafa PIN2-númerið.
Mismunandi getur verið hvaða valkostir eru í boði.