Nokia N97 mini - Hleðsla rafhlöðunnar

background image

Hleðsla rafhlöðunnar

Rafhlaðan hefur verið hlaðin að hluta í verksmiðjunni en e.t.v.

þarftu að endurhlaða hana áður en þú getur kveikt á tækinu

© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

13

background image

í fyrsta sinn. Ef tækið sýnir að lítil hleðsla sé eftir skaltu gera

eftirfarandi.
1 Stingdu hleðslutækinu í samband við innstungu.

2 Tengdu hleðslutækið við tækið. Ljós hleðsluvísisins við

hlið micro-USB tengisins kviknar þegar rafhlaðan er í

hleðslu.

3 Þegar tækið sýnir að rafhlaðan er fullhlaðin skaltu fyrst

taka hleðslutækið úr sambandi við tækið og síðan úr

innstungunni.

Þú þarft ekki að hlaða rafhlöðuna í tiltekinn tíma og þú getur

notað tækið á meðan það er í hleðslu. Ef rafhlaðan er alveg

tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist

á skjánum eða þar til hægt er að hringja.
Ábending: Taka skal hleðslutækið úr sambandi við

rafmagnsinnstungu þegar það er ekki í notkun. Hleðslutæki

sem er í sambandi við innstungu eyðir rafmagni þótt það sé

ekki tengt við tækið.

USB-hleðsla

Hægt er að nota USB-hleðslu ef rafmagnsinnstunga er ekki til

staðar. Með USB-hleðslu er einnig hægt að flytja gögn á

meðan tækið er hlaðið.
1 Tengja samhæft USB-tæki við tækið með samhæfri USB-

snúru.

Skilvirkni USB-hleðslu er afar breytileg. Í sumum tilvikum

getur tekið mjög langan tíma þar til hleðsla hefst og hægt

er að taka tækið í notkun.

2 Ef kveikt er á tækinu er hægt að velja úr USB-stillingum á

skjá tækisins.

Tækið kann að hitna við líkt og myndsímtöl og

háhraðagagnatengingar notkun í lengri tíma. Það er í flestum

tilvikum eðlilegt. Ef þú telur tækið ekki vinna rétt skaltu fara

með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila.