Minniskorti komið fyrir
Verið getur að minniskortið hafi þegar verið sett í tækið. Ef
ekki skaltu gera eftirfarandi:
1 Fjarlægðu bakhlið tækisins.
2 Settu samhæft minniskort í raufina. Gættu þess að
snertiflötur kortsins snúi niður og í átt að raufinni.
3 Ýttu kortinu inn þar til það smellur á sinn stað.
4 Settu bakhlið símans aftur á sinn stað. Snúðu framhlið
tækisins niður á meðan þú setur bakhliðina á það. Gættu
þess að lokinu sé örugglega komið rétt fyrir.