
SIM-korti og rafhlöðum komið fyrir
Mikilvægt: Ekki skal nota mini-UICC SIM-kort, einnig þekkt
sem micro-SIM-kort, micro-SIM-kort með millistykki eða SIM-
kort með mini-UICC straumloka (sjá mynd) í þessu tæki. Micro
SIM-kort er minna en venjulegt SIM-kort. Þetta tæki styður
ekki notkun micro SIM-korta og ef ósamhæf SIM-kort eru
notuð getur það valdið skemmdum á minniskortinu eða
tækinu sjálfu og gögn sem geymd eru á kortinu geta
skemmst.
Farðu nákvæmlega eftir leiðbeiningunum til að skemma ekki
bakhliðina.
Örugg fjarlæging. Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja
hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.
1 Fjarlægðu bakhliðina með því að lyfta henni frá neðri
enda tækisins.
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
10

2 Lyftu rafhlöðunni og fjarlægðu hana ef hún er í tækinu.
3 Dragðu festingu SIM-kortsins út og settu SIM-kortið í.
Gættu þess að snertiflötur kortsins snúi niður og að
endinn með skáhorninu á kortinu snúi að skáhorninu á
höldunni. Ýttu festingu SIM-kortsins aftur inn.
4 Láttu snertur rafhlöðunnar liggja samhliða samsvarandi
snertum í rafhlöðuhólfinu og settu rafhlöðuna í.
5 Til að setja bakhliðina aftur á tækið skaltu beina efstu
læsihökunum að raufunum og ýta henni niður þar til hún
smellur á sinn stað.