Stillingar fyrir snertiinnslátt
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Sími
>
Snertiskjár
.
Til að setja inn stillingar fyrir innslátt á snertiskjá velurðu úr
eftirfarandi:
Handskriftaræfing — Til að opna forritið fyrir
handskriftaræfingu. Það þjálfar tækið í að bera kennsl á
rithönd þína. Þessi valkostur er ekki tiltækur á öllum
tungumálum.
Tungumál texta — Til að skilgreina á hvaða handskrifuðu
sérstafi eru borin kennsl og hvernig takkaborðið á skjánum
er skipulagt.
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
19
Skrifhraði — Til að stilla hve hratt skuli borin kennsl á
rithönd.
Leiðbeiningarlína — Sýna eða fela leiðbeiningarlínuna á
ritunarsvæðinu. Með leiðbeiningarlínunni er auðveldara að
skrifa beint og hún auðveldar einnig tækinu að bera kennsl
á skriftina. Hugsanlegt er að þessi eiginleiki sé ekki tiltækur
fyrir öll tungumál.
Breidd penna — Breyta þykkt textans.
Leturlitur — Breyta lit textans.