Endurvinnsla
Að loknum endingartíma tækisins má endurnýta allan efnivið
tækisins sem efni og orku. Til að tryggja að rétt sé staðið að
losun og endurvinnslu tekur Nokia, ásamt samstarfsaðilum
sínum, þátt í áætlun sem nefnist We:recycle.Til að fá
upplýsingar um endurvinnslu á gömlum Nokia-vörum og
hvar finna má losunarstaði skal fara á www.nokia.com/
werecycle, eða ef farsími er notaður, nokia.mobi/werecycle,
eða hringja í þjónustuver Nokia.
Endurvinna skal pakkningar og notandahandbækur á næstu
endurvinnslustöð.
Merkið sem sýnir yfirstrikaða ruslafötu og er á vörunni,
rafhlöðunni, bæklingnum eða umbúðunum táknar að fara
verður með allan rafbúnað og rafeindabúnað, rafhlöður og
rafgeyma á sérstaka staði til förgunar að líftíma vörunnar
liðnum. Þessi krafa á við innan Evrópusambandsins. Hendið
þessum vörum ekki með heimilisúrgangi. Nánari upplýsingar
um umhverfiseiginleika tækisins eru á www.nokia.com/
ecodeclaration.