Nokia N97 mini - Meðferð tækisins

background image

Meðferð tækisins
Fara skal gætilega með tækið, rafhlöðuna, hleðslutækið og allan aukabúnað. Eftirfarandi

leiðbeiningar hjálpa til við að halda tækinu í ábyrgð.

Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið

steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef tækið blotnar skal fjarlægja rafhlöðuna og leyfa

því að þorna.

Ekki skal geyma tækið á köldum stað.

Ekki skal reyna að opna tækið öðruvísi en tilgreint er í notendahandbókinni.

Óleyfilegar breytingar geta skemmt tækið og kunna að brjóta í bága við ákvæði

laga um senditæki.

Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista það.

Aðeins skal nota mjúkan, hreinan og þurran klút til að hreinsa yfirborð tækisins.

Af og til skal slökkva skal á tækinu og fjarlægja rafhlöðuna til að það virki sem best.

Haltu tækinu frá seglum eða segulsviðum.

Til að tryggja öryggi mikilvægra gagna skal vista þau á minnst tveimur stöðum, svo

sem í tækinu, á minniskorti eða tölvu, eða skrifa niður mikilvægar upplýsingar.

Við lengri aðgerðir getur tækið hitnað. Það er í flestum tilvikum eðlilegt. Ef grunur leikur

á að tæki vinni ekki rétt skal fara með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila.