Um stafræn réttindi
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða staðbundnar venjur, einkalíf og
lögmæt réttindi annarra, þ.m.t. höfundarrétt. Varnir vegna höfundarréttar geta hindrað
afritun, breytingu eða flutning mynda, tónlistar og annars efnis.
Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir stafrænnar réttindatækni (DRM) til að
vernda hugverkarétt sinn, þ.m.t. höfundarrétt. Þetta tæki notar mismunandi gerðir
stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið efni. Í þessu tæki er hægt að opna efni sem
er varið með WMDRM 10 og OMA DRM 2.0. Ef tiltekinn stafrænn hugbúnaður nær ekki að
verja efni geta efniseigendur beðið um að hæfni slíks hugbúnaðar til að opna nýtt efni
sem er varið með stafrænni réttindatækni sé afturkölluð. Með afturköllun er einnig hægt
að hindra endurnýjun á þannig vernduðu efni sem þegar er í tækinu. Afturköllun slíks
hugbúnaðar hefur ekki áhrif á notkun efnis sem er varið með öðrum gerðum stafrænna
réttinda eða notkun efnis sem ekki er varið með stafrænum réttindum.
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
123
Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir leyfi sem tilgreinir hvernig hægt
er að nota efnið.
Ef tækið er með OMA DRM-varið efni skal nota öryggisafritunaraðgerðina í Nokia Ovi Suite
til að taka öryggisafrit af bæði leyfum og efninu.
Ekki er víst að aðrar flutningsaðferðir flytji leyfin sem þarf að endurstilla með OMA DRM-
vörðu efni, til þess að hægt sé að nota það eftir að minni tækisins hefur verið forsniðið.
Einnig gæti þurft að endurstilla leyfið ef skrár í tækinu skemmast.
Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni ásamt leyfi þess ef minni tækisins
er forsniðið. Einnig gæti leyfið og efnið glatast ef skrár í tækinu skemmast. Glatist leyfið
eða efnið getur það takmarkað möguleikann á að nota efnið aftur. Þjónustuveitan gefur
nánari upplýsingar.
Sum leyfi kunna að vera tengd tilteknu SIM-korti og aðeins er hægt að fá aðgang að varða
efninu ef SIM-kortið er í tækinu.