
Hringt í neyðarnúmer
1
Gæta skal þess að kveikt sé á tækinu.
2
Athugaðu hvort nægilegur sendistyrkur er fyrir hendi. Einnig kann að vera
nauðsynlegt að gera eftirfarandi:
•
Komdu SIM-korti fyrir.
•
Afnema skal símtalatakmarkanir, sem eru virkar í tækinu, svo sem útilokun,
fast númeraval og lokaðan notendahóp.
•
Gæta skal þess að ótengt snið og flugsnið séu ekki virk.
•
Taktu skjá og takka tækisins úr lás, hafi þeim verið læst.
3
Ýta skal endurtekið á hætta-takkann þar til heimaskjárinn kemur upp.
4
Opna skal númeraval með því að velja viðkomandi tákn.
5
Sláðu inn opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði. Neyðarnúmer eru
breytileg eftir stöðum.
6
Styddu á hringitakkann.
7
Gefa skal upp allar nauðsynlegar upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Ekki
má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.
Mikilvægt: Kveikja skal bæði á hringingum um farsímakerfið og internetið, ef tækið
styður símtöl um internetið. Tækið reynir bæði að koma á neyðarsímtölum í
farsímakerfinu og um þjónustuveitu netsímtala. Ekki er hægt að tryggja tengingar við
hvaða skilyrði sem er. Aldrei skal treysta eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að ræða
bráðnauðsynleg samskipti, t.d. í bráðatilvikum.